« Home | æai Æi ái ái!! Ég var vafrast eitthvað hérna um á ... » | Svaaaaakaleg bíómynd!Þetta er algjört möst fyrir a... » | I know I know, ég er búin að vera rúmlega léleg að... » | Við Edda töluðum saman á msninu um daginn og fan... » | Róm kom ekkert smá á óvart!Jæja þá kom ég heim í d... » | Það var skóladjamm á fimmtudaginn síðasta með IED,... » | I know I know succer í blogginu!..Íbúðin var tekin... » | Hittum gamla bekkinn frá Danmörku í kvöld, ég og... » | Já ég skal nú segja ykkur það, maður hefur aldei... » | Þessir álfar eru næst í heimsókn, 23 okt, mikil gl... »


Það er gredda í loftinu!



Það er einhver gredda í loftinu hérna í Barcelona! Við Eddie erum með kennara sem er að kenna okkur ljósmyndun, og ég er að segja ykkur það að maðurinn er með svona sexappeal eins og Sean Connery! Og á meðan við slurpum yfir honum þá slurpa sænsku stelpurnar yfir spænsku strákunum sem eru með okkur í þessum kúrsi! Inga roomy fer á deit og slurpar þar, það er eins og ég segi einhver gredda í loftinu hérna. Sem er náttúrulega bara gaman. Svo fer maður inn á bloggið hennar Köllu og þar les maður um femínista og klám, og síðan er öll myndskreytt kellingum með brjóstin í einhverjum þveng sem óneitanlega minnir mig á deig í kökuformi. Eftir allar þessar pælingar ákvað ég að athuga hvort ég fyndi ekki eithtvað meira krassandi til að setja hérna inn á síðuna og deila með ykkur greddunni og mögulega smita all hressilega til Íslands. Það sem eg fann hef ég litla trú á og verð að vona að komi ekki greddunni í gang hjá ykkur.




Þessi listaverk sem þið sjáið hérna fyrir neðan, fín eins og þau eru kannski, þá er efniviðurinn kannski ekki sá algengasti. Nei dömur og herrar, þessi listsköpun hefur líklega orðið vinsælli og auðgerðari, þar sem efniviðinum er auðveldara safnað saman með "Keeper" þ.e. bikarinn kunni sem fæst auðveldlega á www.femin.is Já það er rétt, þessi myndverk eru máluð með túrblóði!


Mér finnst þetta svo ótrúlega heillandi eitthvað, náttúrulega ógeðslegt á sinn hátt, en jesús, ég get bara ekki annað en hlegið! Þvílík hugmynd..


Ég sé þetta bara fyrir mér, hún fer inn á klósett og tæmir bikarinn, í krukku sem hún síðan geymir, og hún verður að fara sparlega þar sem hún fær ekki möguleika á mikið meira í dolluna fyrr en að mánuði liðnum, svo nú er eins gott að fara vel með "málninguna" og ég vona svo bara að hún þrífi penslana vel eftir á!...