mánudagur, maí 01, 2006


Jæja Druslurnar skelltu sér til Aarhus um helgina!


Bekkurinn minn (Katla) var að halda eitthvað styrktarparty, hehe ég stakk upp á því að búa til magazin og selja auglýsingar í það.. en nei danirnir nenna sko ekki einhverju þannig veseni: “stelpur, það er bara bull að gera of mikið, höldum frekar bara partý og hellum í okkur, og já já, við græðum örugglega eitthvað á því”.. hehe, jú jú, við urðum öll blindfull auðvitað, ekki mikill gróði þar reyndar, en svona er þetta bara..gaman að því.. Myndavélinni nauðgað í Silvíu Nótt kjöt svipum..

Við gistum svo hjá Signe sem er með mér í bekk, lúlluðum þar á já ég held ég geti svarið það, þynnstu dýnu sem fyrirfinnst! En það var allt í lagi, við erum svo heppnar að við erum með aukalag af húð haha alltaf næs og kósý hjá okkur hvar sem við erum! ;););)

Við fórum svo í heimsókn til frænda Hildar, og sjá nýju litlu frænkuna- algjört rassgat, og Hildur mætti með ferlega dúllulegan kjól og bol og ég veit ekki hvað og hvað og það hitti svona líka svakalega í mark!

Komum við á kaffihúsi og fengum copy frappochino, baaara gott- þynnkan fór ansi fljótlega með þannig mataræði! ;)

Tjútt í Birk aftur á laugardagskvöldið, og Katla auli að drepast úr hausverk, þannig að ég fór snemma heim, en Hildur hustler og djammari með meiru fór víst á kostum, og skemmti sér svona líka æðislega!

Næs helgi, og nú tekur lærigeðveikin við aftur!

Já bæ ðe vei, Hildur snillingur rústaði auðvitað prófinu sínu, og notar því daginn í dag til að slaka á og hafa það næs = fullkomin stuðningur með því! :):)