« Home | Það er gredda í loftinu!Það er einhver gredda í lo... » | æai Æi ái ái!! Ég var vafrast eitthvað hérna um á ... » | Svaaaaakaleg bíómynd!Þetta er algjört möst fyrir a... » | I know I know, ég er búin að vera rúmlega léleg að... » | Við Edda töluðum saman á msninu um daginn og fan... » | Róm kom ekkert smá á óvart!Jæja þá kom ég heim í d... » | Það var skóladjamm á fimmtudaginn síðasta með IED,... » | I know I know succer í blogginu!..Íbúðin var tekin... » | Hittum gamla bekkinn frá Danmörku í kvöld, ég og... » | Já ég skal nú segja ykkur það, maður hefur aldei... »



Áttu erfiðan dag, er allt að gera þig geðveikan, hafðu ekki áhyggjur, grenjum bara svolítið saman!







Þeir eiga það til að finna upp á hinum ótrúlegustu hlutum! Þeir eru með hæsta hlutfall sjálfsmorða og heyrði ég það einhverntíman að það væri sökum prófstressa og annars konar stress. Nýtt ráð til að lækka prósentuna er núna vinsælast að grenja bara svolítið saman. Þetta er nýjasta æðið í Japan. Bókabúðir fyllast af sérmerktum deildum með sérstaklega grenjulegum bókum og blöðum, Myndbandaleigur eru farnar að skipta hillunum niður í; "nokkur tár" , "mundu eftir kleenex pakkanum" og "þetta er lost case, passið að þrífa af allan farða fyrir áhorf" deildir. Titanic er að fá ótrúlegt comeback og er kaflinn þar sem hún flýtur um á flekanum og ópar: "Jack, Jaaaack" upp yfir sig, orðinn rispaður á hverjum einasta DVD disk.


Þetta æði er orðið svo ótrúlega vinsælt að út um allt hafa opnað litlar búllur og klúbbar þar sem fólk hittist og grætur svolítið saman! Uppteknir og stressaðir business menn geta nú leigt sér herbergi "by the hour" þar sem þeir geta komið og horft á sérstaklega grenjulegar myndir til að losna við stressið. Jii, ég sé fyrir mér atriðið í Dumb & Dumber þar sem þeir sitja upp í rúmi og væla yfir einhverri klósettpappírsauglýsingu eða eitthvað og snýta sér á dollurum.





Frekari upplýsingar um þetta nýja og mjög svo áhugaverða æði.. http://www.tokyocube.com/lifestyle.php?subnav=leisure&feature=things&article=Japanese%20Crying%20Boom





Sayonara !